Lesið 6710 sinnum

Aðventkirkjan gefur út kennsluefni um Biblíuna. Umræðuefnið spannar ársfjórðung í senn og fjallar ýmist um tiltekna bók Biblíunnar eða ákveðið viðfangsefni. Kennsluefnið miðar við það að á hverjum degi er lesið í Biblíunni og íhugað. Á samkomum eru svo málin rædd. Þar spinnast oft mjög líflegar umæður sem vekja til umhugsunar og styrkja okkur í trú og vinskap til hvors annars.
Bæði tilhögun námsins og námsefni er notað í Aðventkirkjunni um allan heim, þannig að hvert sem farið er má finna hópa sem ræða sama málefni í sömu vikunni.
Við köllum þessa bók venjulega „lexían“.
Viðfangsefnið í þessum ársfjórðungi er Sköpunin
Hvers vegna er kirkja okkar til?