Vígsla í vor

Vegna breyttra aðstæðna verður ekki hjá því komist að fresta fyrirhugaðri athöfn í Gamla Lundi, Akureyri, sem vera átti þann 29. október, fram yfir vetraramánuðina. Húsið verður vígt sem safnaðarheimili upp úr miðjum maí á næsta ári. Nákvæm dagsetning verður ákveðin síðar. Með kveðju, samfélagið á Akureyri.
Last Updated on Monday, 24 October 2011 15:02
Hits: 391
Biblíunámskeið á Hótel KEA

Biblían er án efa merkasta bók allra tíma. Hún varð til á u.þ.b. 1500 árum og er til á flestum heimilum. Hún hefur orðið þúsundum til mikillar blessunar öldum saman.
Í þetta sinn munum við leita svara Biblíunnar varðandi spádóma um almenna sögu mannkyns frá 600 fKr til líðandi stundar, mannréttindi eða hornstein vestræns lýðræðis, framvindu sögu Evrópu, spádóma um fyrri komu Jesú Krists og tákna sem varða endurkomu hans og hrun Sovjetríkjanna.
6 fyrirlestrar verða haldnir um þessi efni á þriðjudögum og fimmtudögum kl 20:00 á hótel KEA á Akureyri.
Fyrsti fyrirlesturinn verður þriðjudaginn
1. mars og sá síðasti fimmtu-
daginn 17. mars.
Björgvin Snorrason, PhD,
guðfræðingur og kirkjusagnfræðingur
flytur fyrirlestrana.
Hann hefur flutt fyrirlestra hér heima
og á Norðurlöndum í mörg ár.
Námskeiðið er öllum
opið og ókeypis.
Last Updated on Wednesday, 30 November 2011 09:55
Hits: 696
Jólabasar líknarfélagsins Alfa á Akureyri
Alfa á Akureyri hélt sinn fysta Jólabasar núna á dögunum. Basarinn gekk mjög vel og mun afrakstur sölunnar renna til þurfandi á Akureyri núna fyrir jólin.
Við norðan konur viljum koma á framfæri innilegu þakklæti til allra þeirra sem lögðu sitt af mörkum með því að senda okkur bæði garn og als konar varning.
Stjórn Alfa
Last Updated on Tuesday, 14 December 2010 09:04
Hits: 866
Gamli Lundur á Akureyri
Nú er að verða liðið ár síðan við eignuðumst Gamla Lund, sem er í dag Kirkja sjöundadags aðventista á Akureyri. Það var draumur sem varð að veruleika með sameiginlegu átaki og góðvilja meðbræðra okkar og systra bæði hér heima og úti í heimi. Við hér á Akureyri erum alsæl með kirkjuna okkar og erum smám saman að koma henni í það horf sem við viljum hafa hana. Þetta tekur tíma, en með Guðs hjálp má lyfta björgum.
Til gamans eru hér nokkrar myndir af safnaðarmeðlimum í framkvæmdahug.
Last Updated on Tuesday, 14 December 2010 09:22
Hits: 872
Vilt þú hjálpa okkur að hjálpa öðrum?
...og eiga notalega kvöldstund í góðum hópi í leiðinni?
Líknarfélagið Alfa óskar eftir þinni aðstoð. Við stefnum á basar í byrjun desember til fjáröflunar til styrktar þeim sem minna mega sín í þjóðfélaginu.
Ef þú kannt að prjóna, hekla, sauma eða eitthvað annað sem gæti nýst okkur til að selja á basarnum, þá ert þú velkomin í hóp okkar kvennanna, en við munum koma saman á fimmtudagskvöldum kl. 19.30 frá 2. september til nóvemberloka í Gamla Lundi við Eiðsvallagötu, núverandi Kirkju Sjöunda dags aðventista á Akureyri.
Ef þú getur látið af hendi rakna eitthvað til handavinnu er það vel þegið, en það verður líka eitthvað á staðnum sem allir geta nýtt, t.d. garn, prjónar ofl.
Ef þú sérð þér ekki fært að koma á staðinn en vilt styrkja okkur með þinni handavinnu, hafðu þá samband við okkur.
Ath. að um sjálfboðavinnu er að ræða.
Nánari upplýsingar gefa:
Guðrún s. 690-4495
Hulda s. 821-2733
Sólveig s. 847-2541
Last Updated on Thursday, 09 September 2010 23:52
Hits: 812