Dagamunur að sönnu
Í gær þann 17. desember gerðum við okkur dagamun í Reykjavíkurkirkju. Óperukórinn og vinir héldu aðventutónleikar eins og svo mörg ár áður. Að þessu sinni var með þeim Karlakór Kópavogs. Kórarnir fluttu 23 yndisleg jólalög sem okkur eru svo kær og því má sannarlalega segja að jólaandinn hafi svifið í loftinu.
Sagt hefur verið að erfitt sé að fylla kirkjurnar nú á dögum. Sú var ekki raunin í gær. Það féll m.a. í hlutverk fréttamannsins að reyna að finna pláss fyrir gestina en meira að segja forstofa kirkjunnar var á stundum gjörsamlega yfirfull. Á endanum tókst þó að finna sæti fyrir nánast alla. Ætli það hafi ekki verið hátt í 300 manns í kirkjunni okkar.
Aðal fréttin er þó ekki að kirkjan fylltist af fólki. Miklu mun mikilvægara er að kirkjan fylltist af gleði, tilhlökkun og friði með fallegri tónlist.
Við þökkum kórunum, einsöngvurunum, Hólmfríði fyrir píanóleik og Garðari okkar fyrir þessa yndislegu stund.
GLEÐILEG JÓL, KÆRU VINIR