A+ A A-

Eins og í gamladaga

vey2

,,Þetta var eins og í gamla daga." Sagði Arnmundur Þorbjörnsson eða Addi. Þegar hann sagði frá gestakomu um 30 ungmenna um síðustu helgi til Vestmannaeyja.
Addi rifjaði upp að á yngri árum sínum var hann oft örlítið kvíðinn að koma í kirkju vegna þess að hann þurfti að fá sæti við enda á bekknum vegna fötlunar sinnar.
Þá kom fyrir á stundum að þessi sæti voru upptekin.
Þetta hefur nú um árabil ekki þurft að vera áhyggjuefni hjá honum.
En þegar hann kom í kirkju síðasta hvíldardag, 15. október þá blasti við honum nánast full kirkja.
Kvíði var þó það síðsta sem var í huga hans og annarra hér í Vestmannaeyjasöfnuði. Viku seinna eru þau enn ákaflega glöð og þakklát fyrir góða heimsókn og ánægjulega samveru.
Vestmannaeyjasöfnuðurinn sendir ungmennahópnum kærar kveðjur og vonar að sjóferðin verði betri í næstu heimsókn.

Kirkja sjöunda dags aðventista á Íslandi 2012 | Suðurhlíð 36 | 105 Reykjavík | s. 588 7800 | adventistar.is

Login or Register

LOG IN