Þann 2. maí s.l. útskrifuðust bræðurnir Jón Hjörleifur og Stefán Rafn Stefánssynir frá Andrews University með BA gráðu í guðfræði. Navina Madge Dueck, eiginkona Stefán Rafns lauk einnig BA prófi frá sama skóla í Almennum fræðum og tónlist.
Jón Hjörleifur hyggur á masters nám við Andrews í haust.
Stefán Rafn starfar sem prestur við Hafnarfjarðarsöfnuð og Navina stundar íslensku nám.
Á meðfylgjandi mynd eru þau ásamt foreldrum sínum.
Lesið 761 sinnum
Föstudaginn, 21. maí útskrifaðist Helen okkar Serdeiro Barradas sem Stúdent frá náttúrufræðibraut í FÁ.
Hún er fædd og upp alin í Brasílíu og kom til Íslands fyrir aðeins fjórum árum má því með sanni segja að hún hafi unnið afrek.
Lesið 759 sinnum