Aðventkirkjan á Íslandi

Switch to desktop

Yfirlýsing frá Kirkjunni

sda logo transparentÉg kem hér á framfæri yfirlýsingu af hálfu stjórnar Kirkju sjöunda dags aðventista  í tenglsum við þá umfjöllun sem hefur verið í Kastljósi undanfarna daga.

Lesið 738 sinnum

Nánar...

Barna- og fjölskyldustarf - upptökur

clair sanches  john sanches
Helgina 21.9. - 23.9. komu til okkar í heimsókn hjónin Clair og John Sanches.

Lesið 661 sinnum

Nánar...

Vorferð Vinafélagsins

baugsstadirÞann 6. júní sl. hélt góðmennur hópur í vorferð austur fyrir fjall. Þar voru á ferð nokkrir félagar úr vinafélagi Aðventkirkjunnar. Að þessu sinni fórum við austur með ströndinni frá Strandakirkju og heimsóttum Rjómabúið á Baugsstöðum. Ferðalagið endaði með heimilislegu samsæti í safnaðarheimili Árnessafnaðar á Selfossi. Með þessari ferð lýkur öðru starfsári Vinafélagsins. Við þökkum innilega fyrir góðar stundir. Sjáumst aftur í haust. 

 

Hér má sjá örstutt klipp frá heimsókn okkar í rjómabúinu:

Lesið 593 sinnum

Um útsendingar á Netið

silverlight detailFrá árinu 2009 höfum við gert tilraunir með beinar útsendingar frá guðsþjónustum okkar í Aðventkirkjunni í Reykjavík. Á haustdögum 2010 tókum við upp samstarf við Margmiðlun til að kanna möguleika á útsendingum og til að þróa gæði á mynd og hljóði.

Við höfum ætíð lagt áherslu á hljóðgæðin en nýlega höfum við verið að fikra okkur áfram einnig með myndgæðin. Við höfum nú fengið háhraða örbylgjutengingu sem mun á endanum gefa okkur möguleika á að senda út í háskerpu.

Við erum fyrst og fremst að hugsa til trúarsystkina okkar í Vestmannaeyjum í því samhengi, því að það var að þeirra frumkvæði að þessar útsendingar hófust og voru þær upphaflega eingöngu sendar út til þeirra.

Með betri tækni höfum við getað gert útsendingarnar okkar aðgengilegar almenningi.

Hér er listi yfir sem sýnir útsendingardaga okkar síðan í nóvember 2010 og fjölda gesta.

WMS Hvildardagar

Við sjáum ekki aukningu, en stöðugan hóp gesta þ.e. tölvur sem taka við efninu sem eru að meðaltali sex. Þetta merkir að á bilinu 10-20 tölvur taka við guðsþjónustum okkar úr fjarska og geta áhorfendur verið fleiri enda eru m.a. í Vestmannaeyjum heill hópur fólks komin saman til að fylgjast með.

Það er ráðgáta hvers vegna gestafjöldinn rýkur upp á tilteknum dögum. En það sama gerist einnig í kirkjum okkar. Sennilega er þar ekki um eina staka skýringu að ræða heldur koma saman fjöldi óskyldra ástæðna.

Gestir okkar koma lang flestir frá Íslandi en önnur lönd finast líka á listanum:

WMS lond

 

Hár fjöldi gesta frá Sviss kemur til vegna ættartengsla Manfreds, en móðir hans er reglulegur gestur.

 

Lesið 704 sinnum

Um vefinn okkar

LOGO-NOTEXTVefurinn okkar í þeirri mynd sem hann er núna hefur nú verið uppi frá því í mars 2010, þ.e. í tvö ár. Þetta gefur tilefni til að skoða nánar hvernig hann hefur verið notaður og hver heimsækir hann.

 

 

 

Lesið 550 sinnum

Nánar...

Kirkja sjöunda dags aðventista á Íslandi 2012 | Suðurhlíð 36 | 105 Reykjavík | s. 588 7800 | adventistar.is

Top Desktop version

twn Are you sure that you want to switch to desktop version?