Lesið 639 sinnum
Í gær var haldinn síðasti vinafundur á árinu og þar voru saman komnir rúmlega þrjátíu manns til að njóta samvistar, drekka súkkúlaði og halda aðventustund.
Að þessu sinni var meðalaldurinn töluvert lægri en vanalega því að kátir krakkar úr Suðurhlíðarskóla komu til okkar og sungu jólalög af lífs- og sálarkröftum.
Við þökkum öllum vinum okkar fyrir góðar stundir á árinu sem er að líða og hlökkum til að sjá ykkur aftur á síðasta miðvikudegi í janúar sem er þann 25. Lifið heil.
Þóra og Manfred