A+ A A-

Loforð Guðs fyrir þá sem syrgja, óttast eða örvænta

Rate this item
(2 votes)

Guð lofar okkur í Heilögu Ritningunni að við getum treyst á hann þegar við þrufum á von eða huggun að halda. Þetta loforð sýnir okkur innsta kjarna Skapara okkar sem er kærleikur. Við sem trúum á hann erum hans fjölskylda. Við finnum í honum umhyggjusaman föður.

Þegar blikur eru á lofti og áhyggjur byrja að CRW_0515hrannast upp höfum við þá tilhneygingu að búast við hinu versta. Þá virðist eins og við gleymum að við erum ekki ein, faðir okkar á himnum er með okkur, við erum í hans höndum. Engu að síður virðast ótti, áhyggjur og sorg byrgja sýn okkar á þessa staðreynd.

Því er hins vegar ekki að neita að stundum er erfitt að sjá eða finna leiðsögn Guðs þegar hlutir gerast í lífi okkar sem eru æðri okkar skilningi. Hvernig getum við haldið trú á algóðan Guð þegar við sitjum við sjúkrabeð eða jafnvel dánarbeð?

traubenMálið er að maðurinn er ekki skapaður til að þola þjáningar. Okkur er það óeðlilegt. Þess vegna er lífið erfitt á stundum. En jafnvel á dimmustu stundum getum við verið þess fullviss að Drottinn er með okkur, hann þjáist með okkur.

 

Í Biblíunni höfum við mikið af huggunarorðum sem gott er að halda í þegar á reynir. Við þurfum að gera okkur grein fyrir því að þessi vers eru tekin úr samhengi hér. Nauðsynlegt er að lesa kaflann sem þau koma frá til að skilja samhengi þeirra að fullu.

Engu að síður getur gott vers sem þú mannst á réttri stundu veitt líkn og von langt umfram margt annað.

 

 

 

 

 

Hér eru fjögur ráð fyrir fólk sem er að missa sjónar á Guði vegna örvæntingar.

  1. Taktu þá meðvituðu ákvörðun að treysta því að Guð er klárari, stærri og umfram allt kærleiksríkari en þú getur ímyndað þér. Guð elskar þig og mun alltaf standa við loforð sín. Lestu versin á þessari síðu aftur og aftur. Mettaðu hugann þin með þeim.
    Treystu Drottni af öllu hjarta
    en reiddu þig ekki á eigið hyggjuvit.
    Minnstu hans á öllum vegum þínum,
    þá mun hann gera leiðir þínar greiðar.
    Orðskviðirnir 3.5-6 

  2. Ekki tilbiðja vandamálið. Eins skrítið og það hljómar þá er það ekki óalgengt að fólk virðist eins og verða ástfangið af sjálfu vandamálinu. Verkirnir, sjúkdómurinn, sorgin, missirinn verða að eina umræðuefninu. Þetta verður það eina sem manneskjan hugsar um daginn út og inn. Þá er stutt í að vandamálið verður að eins konar hjáguði sem er dýrkað á sérkennilegan hátt. Reyndu að tala fyrst og fremst við Guð um vandann þinn og leyfðu honum að höndla það fyrir þig. Hann er svo flinkur.

    Varpið allri áhyggju ykkar á hann því að hann ber umhyggju fyrir ykkur.
    Fyrra Pétursbréfið 5.7

  3. Náðu aftur frið og gleði þinni: Einblíndu á Drottinn. Mundu hver hann er, hvað hann getur og hvað hann hefur gert fyrir þig. Mundu eftir þessu og bægðu frá öllum hugsunum um stærð vandamála þinna.

    Ég hef augu mín til fjallanna,
    hvaðan kemur mér hjálp?
    Hjálp mín kemur frá Drottni,
    skapara himins og jarðar.
    Hann mun ekki láta fót þinn skriðna,
    vörður þinn blundar ekki.
    Sálmarnir 121.1-3

  4. Biddu, þakkaðu Guði og leyfðu honum að taka völdin.

    Verið ekki hugsjúk um neitt heldur gerið í öllum hlutum óskir ykkar kunnar Guði með bæn og beiðni og þakkargjörð. Og friður Guðs, sem er æðri öllum skilningi, mun varðveita hjörtu ykkar og hugsanir ykkar í Kristi Jesú.
    Filippibréfið 4.6-7 

Langar þig til að tala við prest? Hafðu samband.

  

Last modified on Wednesday, 09 November 2011 20:44
Manfred Lemke

Prestur í Aðventkirkjunni  í Reykjavík og vefstjóri.

Website: manfredlemke.net
Kirkja sjöunda dags aðventista á Íslandi 2012 | Suðurhlíð 36 | 105 Reykjavík | s. 588 7800 | adventistar.is

Login or Register

LOG IN