|
„Þetta eru þínir peningar!" |
|
Föstudagur, 03. september 2010 10:28 |
|
Námskeið í persónulegri fjármálastjórnun samkvæmt meginreglum Biblíunnar
G. Edward Reid, höfundur og fyrirlesari námskeiðsins „Þetta eru þínir peningar", er deildarstjóri ráðsmennskudeildar Norður-Ameríkudeildar Kirkju sjöunda dags aðventista. Ed er vígður prestur, lögfræðingur, og hefur kennara– og ráðgjafagráðu frá Christian Financial Concepts, óháðri, kristilegri menntastofnun sem hefur að markmiði að kenna biblíulegar meginreglur fjármálastjórnunar.
Ed hefur haldið námskeiðið víða í Bandaríkjunum og Kanada fyrir þúsundir þátttakenda, og einnig flutt erindi um þetta efni í útvarpi og sjónvarpi. Fólk frá mörgum kirkjudeildum hefur lýst yfir þakklæti sínu fyrir þetta hagnýta og andlega námskeið um persónuleg fjármál.
Nú mun Ed halda þetta námskeið hér á landi og við hvetjum þig til að mæta og bjóða með þér vinum þínum. Nýttu þér þetta einstaka tækifæri til að fræðast um fjármálastjórnun. Aukinn skilningur á vilja Guðs í fjármálastjórnun veitir frið og minnkar streituna í lífinu.
|
|
Nánar...
|
|
Viltu endurnýja kynni þín við Jesú, trúna og Kirkjuna? |
|
Þriðjudagur, 22. júní 2010 10:04 |
|
Nýtt námskeið byrjar í 3. septemberviku
Margir skírast sem ungmenni, sennilega á bilinu 14 til 20 ára. Þetta á líklega einna mest við um þau sem eru upp alin í Aðventfjölskyldu. Eftir nokkur ár í ungmennahópi, ef til vill í skátastarfi eða einhverju slíku koma fullorðinsárin. Fyrr en varir hafa margvíslegir hlutir gerst. Ef til vill eru komin maki og börn. Með öðrum orðum: Ýmislegt er búið að gerast. Bæði góðir og vondir hlutir. Þannig er lífið. Ert þú stundum að velta fyrir þér hvort trúarlíf þitt, samband þitt við Kirkjuna byggist ennþá á sama trausta grunni og þegar þú skírðist? Finnst þér kominn tími til að endurnýja kynni þín við trúna þína og endurnýja þessa tilfinningu um fullvissu sem þú hafðir þá?
Þó að við teljum að skírn sé gild í eitt skipti fyrir öll og að fyrirgefning Guðs muni bera okkur um aldur og æfi, þá getur verið gott að rifja upp og ræða grunnatriði trúar okkar í litlum hópi.
Það er þetta sem mig langar til að bjóða upp á í haust.
|
|
Nánar...
|
|
Sunnudagur, 20. júní 2010 11:09 |
|
Mundu að þú getur lesið eldri fréttir með því að fara í valmyndina Um okkur -> fréttir -> veffréttir
Einnig viljum við benda á að til að spara pláss er ekki alltaf birt öll fréttin í senn. Ef svo er kemur "nánar" takki neðst til hægri á greininni sem má smella á til að sjá restina.
Góðar stundir |
|
|