Sumarmót 2010 í Hlíðardalsskóla PDF Print E-mail

 

Verslunarmannahelgina 30. júlí – 2. ágúst

 

Við minnum á sumarmót Kirkjunnar sem haldið verður um Verslunarmannahelgina í Hlíðardalsskóla.  Hjónin Don og Marti Schneider verða ræðumenn sumarmótsins að þessu sinni.

 

don3Don Schneider var formaður Norður-Ameríkudeildarinnar frá 2000 – 2010 og Marti hefur starfað sem Shepherdess leiðtogi (starf fyrir maka presta) í sömu deild og sem stjórnandi í SEEDS sem er árleg ráðstefna í Norður Ameríku um stofnun nýrra safnaða.  Don er stjórnandi sjónvarpsþáttarins ”Really Living” (líf í raun og veru) þar sem hann býður gestum sínum að deila með áhorfendum hvernig það er að lifa lífinu í nánum tengslum við Jesú – hinu raunverulega lífi.  Þetta mun verða efni Dons á sumarmótinu í ár og Marti mun segja okkur frá stórkostlegri uppgötvun sinni hvað snertir lestur Biblíunnar og kenna okkur þá aðferðafræði sem hefur breytt hennar lífi.

 

Verðskrá:

Pakki fullorðnir:     9.500 kr. (9 máltíðir, 2 kvöldkaffi)

Pakki 15-20 ára:    7.500 kr. (          - ” -                )

Pakki börn (5-15):  5.000 kr. (          - ” -                )

-gisting ókeypis fyrir pakka-

 

Stakar máltíðir      fullorðnir    1.250 kr.

15-20 ára   1.000 kr.

12-15 ára      750 kr.

5-12 ára       600 kr.

< 5 ára            0 kr.

 

Gisting án pakka   1.500 kr. nótt svefnpokapláss

2.500 kr. nótt uppbúið rúm

 

Fjölskyldu hámark    29.000 kr. (m.v. foreldra með börn á sínu framfæri)

 

Tjaldstæði, ein nótt:  1.000 kr.

 

 Auglýsinga bæklingur 216.70 Kb

 

Skráning á skrifstofu aðventista í síma 588-7800 eða netpósti This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it

Last Updated on Tuesday, 27 July 2010 14:49
 

Deildu þessa síðu með öðrum

  • blogger
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • MySpace
  • Twitter
  • wordpress