top of page

Gulur september: Að hlusta, bera umhyggju fyrir öðrum og veita von.

2 days ago
3 min read

by Mariana Ferelli



Þann 10. september var alþjóðlegur forvarnardagur gegn sjálfsvígum haldinn hátíðlegur um allan heim – dagurinn er tileinkaður því að stuðla að vitundarvakningu, draga úr fordómum og minna okkur á mikilvægi þess að leita sér faglegrar aðstoðar þegar við glímum við andlega eða tilfinningalega vanlíðan.


Í septembermánuði koma samfélög um allan heim saman til að vekja athygli á geðheilbrigði og forvörnum gegn sjálfsvígum. Á Íslandi er þetta átak þekkt sem Gulur september. Það sameinar heilbrigðisstofnanir, sjúkrahús, félagsþjónustu og félagasamtök með það sameiginlega markmið að efla andlega vellíðan og styrkja forvarnir gegn sjálfsvígum.


En Gulur september er meira en bara lýðheilsuframtak. Það er líka boð til samfélagsins um að hafa vökul augu, sýna umhyggju og vera til staðar fyrir hvert annað.

Kirkja sjöunda dags aðventista viðurkennir að trúfélög geti gegnt mikilvægu hlutverki í forvörnum gegn sjálfsvígum. Með því að draga úr fordómum, þekkja merki um vanlíðan, vera dugleg að hlusta á fólk og hvetja það til að leita sér faglegrar aðstoðar geta kirkjur orðið staðir þar sem fólk finnur til öryggis til að biðja um hjálp.


Aðventkirkjan hvetur einnig til opinnar umræðu um sjálfsvíg og geðheilbrigði. Verkefni á vegum kirkjunnar, kallað REMINDED, gaf út heimildarþáttaröðina Inside Suicide þar sem geðheilbrigðisstarfsfólk, trúarleiðtogar og fólk með persónulega reynslu af sjálfsvígum tjá sig um málefnið. Þáttaröðin leitast við að rjúfa þögnina sem umlykur sjálfsvíg og minnir okkur á að fagleg umönnun, stuðningur samfélagsins og trú geta allt verið hluti af leiðinni til bata.


Biblían minnir okkur á að jafnvel fólk með djúpa trú getur upplifað mikla vanlíðan. Spámaðurinn Elía, til dæmis, komst á þann stað að hann óskaði sér þess að mega deyja (1. Konungabók 19). Guð brást ekki við þjáningu hans af dómhörku. Þess í stað veitti hann Elía hvíld, mat og umönnun. Hann var með honum, talaði við hann og hjálpaði honum að líta fram á veginn.


Kannski er þetta einn mikilvægasti boðskapur Gula septembers:


Við þurfum ekki að takast á við erfiðleika okkar ein.

Sem kristið samfélag erum við kölluð til að vera vakandi fyrir því þegar einhver á erfitt, hlusta án dómhörku og minna hvert annað á að hver einstaklingur er mikils virði. Við getum líka viðurkennt að trú og fagleg umönnun eiga samleið. Bæn og fagleg hjálp geta farið hönd í hönd.


Jesús sagði:


„Ég er kominn til þess að þau hafi líf, líf í fullri gnægð“ (Jóhannes 10:10).

Sem sjöunda dags aðventistar trúum við því að lífið sé gjöf frá Guði og að við séum kölluð til að bera umhyggju fyrir heildarpakkanum, þ.e. að hugsa um líkamlegar, vitsmunalegar, andlegar og félagslegar þarfir okkar. Þegar við hugsum um geðheilsu okkar erum við líka að hugsa um gjöf lífsins.

Að hlusta er þjónusta.

Að bjóða öruggan stað er leið til að deila kærleika Krists.

Megi kirkjan okkar vera staður þar sem fólk finnur ekki aðeins trú, heldur einnig að það sé hlustað á það og því sé veitt samúð. Að fólk geti orðið hluti af samfélagi og öðlist von. Að kirkjan sé staður þar sem hægt er að segja: „Mér líður ekki vel“ og vita að hann/hún þarf ekki að ganga í gegnum erfiðleikana ein(n).

Við getum ekki alltaf tekið burt sársauka annarra. En við getum verið til staðar, hlustað og hjálpað þeim að finna næsta skref.


  • Allan mánuðinn býður Gulur september upp á viðburði og athafnir sem hvetja fólk til að tala opinskátt um geðheilbrigði, fylgjast með þeim sem eru í kringum það og leita sér hjálpar þegar þörf krefur. Þú getur fræðst meira um átakið og viðburði þess á www.gulurseptember.is.


Comments

Couldn’t Load Comments
It looks like there was a technical problem. Try reconnecting or refreshing the page.
bottom of page