|
Barnastarfið hefur eignast litla sundlaug og verður hún óspart notuð á sumarmótinu. Vinsamlegast hafið því með ykkur handklæði og sundföt eða amk föt sem má busla í. Við stefnum líka á að leika okkur upp við læk og jafnvel förum við líka í fjöruferð svo endilega verið viðbúin, jafnvel þótt ekki sé ætlunin hjá öllum að stoppa alla helgina.
|
|
Last Updated on Wednesday, 28 July 2010 21:33 |
|
Undanfarna miðvikudaga höfum við gert tilraunir með nýja tegund af sumarstarfi: Skútusiglingum!
Langar þig til að prufa?
Siglingin tekur um 3 klst en er auðvitað háð veðri og vindum. Við getum tekið 5-7 farþega í senn. Það er nauðsynlegt að skrá sig fyrirfram.
|
|
Last Updated on Thursday, 29 July 2010 12:34 |
|
Read more...
|
|
Unglinga dagskrá fyrir sumarmótið |
|
|
|
|
Jæja, langar ykkur að vita aðeins hvað er planað fyrir unga fólkið á sumarmótinu? Þrátt fyrir að margir séu horfnir til Finnlands þýðir það ekki að við munum ekki plana neitt. Þvert á móti, við getum leyft okkur að gera eitthvað sem annars væri ómögulegt ef allir væru á staðnum. Dagskrána fyrir unga fólkið getur þú séð hér að neðan.
|
|
Last Updated on Tuesday, 27 July 2010 14:40 |
|
Read more...
|
|
Sumarmót 2010 í Hlíðardalsskóla |
|
|
|
|
Verslunarmannahelgina 30. júlí – 2. ágúst
Við minnum á sumarmót Kirkjunnar sem haldið verður um Verslunarmannahelgina í Hlíðardalsskóla. Hjónin Don og Marti Schneider verða ræðumenn sumarmótsins að þessu sinni.
Don Schneider var formaður Norður-Ameríkudeildarinnar frá 2000 – 2010 og Marti hefur starfað sem Shepherdess leiðtogi (starf fyrir maka presta) í sömu deild og sem stjórnandi í SEEDS sem er árleg ráðstefna í Norður Ameríku um stofnun nýrra safnaða. Don er stjórnandi sjónvarpsþáttarins ”Really Living” (líf í raun og veru) þar sem hann býður gestum sínum að deila með áhorfendum hvernig það er að lifa lífinu í nánum tengslum við Jesú – hinu raunverulega lífi. Þetta mun verða efni Dons á sumarmótinu í ár og Marti mun segja okkur frá stórkostlegri uppgötvun sinni hvað snertir lestur Biblíunnar og kenna okkur þá aðferðafræði sem hefur breytt hennar lífi.
|
|
Last Updated on Tuesday, 27 July 2010 14:49 |
|
Read more...
|
|
|
|
|
<< Start < Prev 1 2 Next > End >>
|
|
Page 1 of 2 |