Á erindi þá og nú
Kærleikurinn heldur áfram að gefa af sér, og þess vegna heldur lífið áfram.

Hér fer á eftir predikun sem Ivo Kask flutti í tilefni af afmæli kirkjunnar í Reykjavík þann 10. október 2026.
Þegar ég var að alast upp þá voru sum heimili með sérstakt herbergi.
Kannski munið þið eftir þessum herbergjum.
Besti sófinn var þar.
Bestu stólarnir voru þar.
Fínasta teppið var þar.
Stundum voru jafnvel auka hlífar yfir húsgögnunum.
Sem barni fannst mér þessi herbergi heillandi. Enginn notaði þau.
Það mátti sitja í eldhúsinu.
Það mátti hlæja í eldhúsinu.
Það mátti sulla niður í eldhúsinu.
En ekki í þessu herbergi.
Þetta herbergi var verndað.
Það sérstaka við þetta var að húsgögnin héldust í ljómandi góðu standi.
Tíu árum síðar litu þau út eins og ný.
Tuttugu árum síðar litu þau út eins og ný.
Það var ekki að sjá á þeim.
Sem er, ef þú pælir í því, kannski ekki æðsti tilgangur stóls.
Stóll sinnir hættulegu ævistarfi.
Fólk situr á honum.
Börn hoppa á honum.
Skyr sullast á hann.
Hundar sofa á honum.
Stóll sem rispast aldrei getur haldist fallegur.
En hann hefur gleymt tilgangi sínum.
Í dag fögnum við því að hundrað og tuttugu (120) ár eru liðin frá því að þessi söfnuður var stofnaður.
Og hundrað (100) ár frá því að þetta kirkjuhús var vígt.
Og þegar fólk fagnar afmæli, lítum við eðlilega í kringum okkur og segjum:
„Sjáið. Þetta er ennþá hér.“
Og það er satt.
Þetta er ennþá hér.
En á meðan ég var að hugsa um daginn í dag kom önnur saga mér ítrekað í huga.
Saga af Pétri.
Ekki Sankti Pétri.
Bara Pétri.
Sjómanni.
Svona manni sem talaði yfirleitt áður en hann hugsaði.
Mánuðum saman hafði hann fylgt Jesú.
Fylgst með honum.
Hlustað á hann.
Reynt að átta sig á honum.
Hver er þessi maður?
Kennari?
Spámaður?
Eitthvað meira?
Svo spyr Jesús einn daginn spurningar:
„Hvern segið þið mig vera?“
Og Pétur svarar:
„Þú ert Messías.“
Fyrir okkur er þetta kirkju-tungumál.
Fyrir Pétri var það það ekki.
Á þessu augnabliki fékk allt loksins meiningu.
Messías var hinn fyrirheitni konungur sem Guð hafði lofað.
Sá sem átti að koma öllu í lag.
Sá sem þeir höfðu beðið eftir.
Ímyndaðu þér hvernig er að vinna að púsluspili mánuðum saman og finna loksins púslið sem vantaði.
Pétur var í þeim sporum.
Loksins.
Nú veit hann.
Nú er framtíðin skýr.
Nú getur sagan hafist.
En þá segir Jesús eitthvað alveg óvænt.
Hann segist vera á leið til Jerúsalem.
Hann segist munu þjást.
Hann segist munu verða hafnað.
Hann segist munu verða drepinn.
Ég sé Pétur alltaf fyrir mér líta í kringum sig á hina:
„Heyra þetta allir?“
Síðan dregur hann Jesú afsíðis.
Og ég held að Pétur hefji samtalið ekki á guðfræði. Ég held að hann byrji á hreinni undrun og ringulreið.
„Jesús...“
„Messíasar deyja ekki.“
„Sagan er ekki svona.“
„Nei.“
Ekki Jerúsalem.
Ekki þjáning.
Ekki dauði.
Ekki þú.
Og í fullri einlægni, þá skil ég Pétur.
Ég geri það svo sannarlega.
Því Pétur er ekki að reyna að stöðva Jesú vegna þess að hann vantar trú.
Pétur er að reyna að stöðva Jesú vegna þess að hann elskar hann.
Hann hefur lagt allt undir hjá honum.
Væntingar sínar.
Drauma sína.
Framtíð sína.
Og nú gengur Jesús beint í áttina að því sem Pétur hræðist mest.
Stundum er það erfiðasta ekki að missa eitthvað.
Stundum er það erfiðasta að horfa á Guð ganga í burtu frá þeirri framtíð sem þú hafðir skipulagt.
Árið nítján hundruð og ellefu (1911) átti þessi söfnuður enga kirkjubyggingu.
Fyrsta kirkjan hafði brunnið.
Svo þau hittust í leiguhúsnæði á Laugavegi.
Tvö herbergi.
Gengið var inn um eldhúsið.
Annað herbergið var notað fyrir samkomur.
Hitt herbergið var svefnherbergi fyrir trúboðann, ungan Norðmann sem hét Olaf Olsen, og eiginkonu hans, Alinu.
Í gegnum vikuna var kirkjubekkjunum staflað upp þarna innandyra.
Alina átti von á þeirra fyrsta barni.
Og þegar hvíldardagurinn var liðinn og allir farnir heim, skúraði hún óhreinindin af gólfinu.
Hugsaðir þú aftur til spari-stofunnar?
Engin fótspor.
Ekkert slettist niður.
Ekkert slit.
Sjáðu svo fyrir þér þessa litlu íbúð.
Aur á gólfunum.
Fólk að koma og fara.
Bekkir bornir inn og út.
Ólétt kona að þrífa á eftir.
Enginn í þessari íbúð var að varðveita minjasafn.
Þau voru að nota líf sitt í eitthvað.
Önnur saga.
Olaf Olsen var ungur Norðmaður sem bjó í New York.
Hann fann að Guð var að kalla hann til þjónustu.
Til þess þurfti hann menntun við Union College í Nebraska.
Í heilt ár streittist hann á móti.
Þá kom bankakreppa.
Hann átti sparnað læstan í banka.
Hann baðst fyrir:
„Drottinn, ef ég get náð peningunum mínum út, þá fer ég í skólann.“
Hættuleg bæn.
Sagan segir að hann hafi í laumi vonað að hlutirnir yrðu áfram nákvæmlega eins og þeir voru. En eftir að hafa yfirheyrt hann, afhenti bankastjórinn honum allan sparnaðinn hans í gulli.
Allt í einu var vandamálið ekki lengur bankinn.
Vandamálið var að framtíðin sem hann hafði beðið um var mætt.
Fjórum árum síðar, á tuttugasta og fjórða afmælisdaginn sinn, steig hann á land í Reykjavík.
Hann lærði íslensku.
Hann varði næstu þrjátíu og sex árum í að leiða starf aðventista á Íslandi.
Fólk fór að þekkja hann sem „Íslands-Olsen“.
Og það var hann sem bjó í þessari litlu íbúð á Laugaveginum.
Pétur þekkir þessa tilfinningu.
Eina stundina segir hann:
„Þú ert Messías.“
Á næstu stundu byrjar Jesús að lýsa því hvert sú leið liggur.
Jerúsalem.
Höfnun.
Kross.
Og Pétur uppgötvar að framtíðin sem Jesús talar um er ekki framtíðin sem Pétur hafði séð fyrir sér.
Ef þessir veggir gætu talað, hvaða sögur kynnu þeir að segja?
Ég held að þeir myndu ekki segja okkur það sem við bjuggumst við.
Við myndum spyrja um þekkt fólk.
Veggirnir myndu líklega segja okkur frá einhverjum sem læsti húsinu eftir að allir aðrir voru farnir heim.
Einhverjum sem kenndi börnum í tuttugu ár.
Einhverjum sem sat hjá syrgjandi manneskju.
Einhverjum sem enginn man eftir nema Guð.
Við myndum spyrja um mikilvægar ákvarðanir. Veggirnir kynnu að segja okkur frá hljóðlátum bænum.
Við myndum spyrja hvernig kirkjan lifði af.
Veggirnir gætu sagt:
„Þú ert að spyrja rangrar spurningar.“
Því fólkið sem byggði þennan stað var ekki að reyna að reisa byggingu sem myndi enn standa hundrað árum síðar.
Árið nítján hundruð tuttugu og fimm (1925) hafnaði fólkið tilboðum byggingameistaranna og ákvað að byggja þetta sjálft.
Safnaðarfólk bar steypu.
Fötu eftir fötu.
Einn meðlimur, Loftur Sigurðsson, smíðaði gluggana og ræðustólinn.
Fólk gaf dagslaun.
Fólk gaf kvöldstundir.
Fólk gaf krafta sína.
Ekki því að því þótti svo gaman að bera steypu. Heldur af því að það elskaði eitthvað annað meira.
Enginn bar steypufötur vegna þess að honum fannst gaman að bera fötur.
Alina skúraði ekki drulluna eftir kirkjugesti af gólfinu vegna þess að þrif voru áhugamál hennar.
Jesús gekk ekki til Jerúsalem vegna þess að þjáning er heillandi.
Kærleikurinn er það sem tengir allar þessar sögur saman.
Pétur var ekki hræddur við þjáningu.
Hann var hræddur við að missa Jesú.
Kærleikurinn er það sem gerir allar þessar sögur sársaukafullar.
Og þetta er það sem Pétur á í basli við.
Framtíðin sem Pétur sá fyrir sér var góð framtíð.
Hefðirnar sem við elskum eru oft góðar.
Minningarnar sem við metum mikils eru góðar.
Húsgögnin sem hafa þjónað okkur í áratugi eru góð.
Þægindin við að vera innan um fólk sem þekkir okkur eru góð.
Það er ekki málið.
Málið er hvort við elskum þessa hluti meira en tilganginn sem þeim var ætlað að þjóna.
Stóll er til þess að sitja á.
Heimili er til þess að búa á.
Kirkja er til svo hún sé notuð.
Fyrir borgina.
Fyrir nágrannana.
Fyrir ókunnuga.
Og það kostar sitt.
Ekki vegna þess að breytingar kosta.
Kærleikurinn kostar.
Hann tekur tíma.
Hann krefst athygli.
Hann krefst þolinmæði.
Hann krefst þess að maður opni líf sitt fyrir fólki sem gæti flækt þægilegu áætlanir manns.
Trúboð er aldrei snyrtilegt og fágað.
Það var íbúðin á Laugavegi ekki heldur.
Ekkert frekar en Jerúsalem.
Og hér er sá hluti sem Pétur skildi ekki ennþá.
Jesús var ekki bara að kenna lexíu.
Hann var ekki að segja:
„Sjáið mig fórna mér.“
Hann var að segja:
„Ég er að gera þetta fyrir ykkur.“
Krossinn leit út eins og ósigur.
En Jesús bar eitthvað sem var þyngra en viðurinn.
Hann var að bera okkur.
Sekt okkar.
Synd okkar.
Ósigra okkar.
Fjarlægð okkar frá Guði.
Pétur hélt að Jerúsalem væri endirinn á sögunni.
Jesús vissi að þar myndi kærleikur Guðs opinberast skýrast.
Og sá kærleikur er fyrir alla.
Fyrir fólk sem hefur eytt öllu lífi sínu í kirkjunni.
Og fyrir þann sem situr hér í fyrsta sinn eða sjaldan.
Fyrir þann sem kann alla sálmana.
Og fyrir þann sem kann ekki einn einasta.
Fyrir þann sem finnst hann vera náinn Guði.
Og fyrir þann sem veltir því fyrir sér hvort Guð veiti honum á annað borð athygli.
Jesús fór til Jerúsalem vegna þess að hann elskaði fólk.
Það er fagnaðarerindið.
Ekki að við gefum okkur fyrst Guði.
Heldur að Guð gaf sig fyrst okkur.
Svo í dag, þegar við fögnum hundrað og tuttugu (120) ára afmæli þessa safnaðar og hundrað (100) ára afmæli þessarar byggingar, er kannski hið raunverulega kraftaverk ekki að hún lifði af.
Ef til vill er kraftaverkið það að kynslóð eftir kynslóð tileinkaði venjulegt fólk líf sítt einhverju sem var stærra en það sjálft.
Fólkið sem stofnaði þennan söfnuð er farið.
Fólkið sem byggði þetta hús er farið.
Fólkið sem sótti hér fyrstu guðsþjónusturnar er farið.
En vegna þess að þau voru tilbúin til að leggja sig öll fram fyrir eitthvað stærra en þau sjálf, þá erum við hér.
Pétur vildi halda Jesú fyrir sig.
Jesús gaf sjálfan sig.
Og vegna þess að hann gaf sjálfan sig, streymdi lífið inn í heiminn.
Það sama líf streymdi í gegnum leiguíbúð á Laugavegi.
Í gegnum fólk sem bar steypufötur.
Í gegnum venjulega trúmenn sem flest okkar muna ekki lengur nöfnin á.
Átti erindi þá.
Á erindi nú.
Ekki vegna þess að einhver varðveitti minjasafn mjög varlega.
Heldur vegna þess að einhver elskaði nógu mikið til að gefa.
- Ivo Kask


Comments