ÚTBREIÐSLUSTARF Á ÍSLANDI Á VEGUM KIRKJUNNAR Á ÍSLANDI OG AWR

Nú er loksins komið að útbreiðsluátakinu sem hefur verið í undirbúningi undanfarna mánuði á vegum Kirkjunnar á Íslandi og AWR (Adventist World Radio). Kennarar og nemendur frá ótal löndum munu fljúga til Íslands í næstu viku og koma sér fyrir á Hlíðardalsskóla þar sem fara mun fram þjálfun í boðun.
Eftir það munu hefjast opinberar samkomur þann 26. september kl. 19:00 í Aðventkirkjunni Hafnarfirði, Aðventkirkjunni í Reykjavík og í safnaðarheimilinu í Árnesi.
Samkomurnar í kirkjunni í Reykjavík verða sérstaklega fyrir fólk frá Úkraínu, með þýðingu yfir á ensku.
Vinsamlegast biðjið fyrir þessu átaki og bjóðið vinum og vandamönnum að koma.

Comments